Ég er ótrúlega nálægt því að hætta þessu bloggveseni þar sem ég er búinn að lenda í því núna svona 7 sinnum að vera búinn að skrifa bloggfærslu og setja inn myndir og allt lítur voða vel út... en svo bara save-ast ekkert. Veit ekki alveg hvaða rugl þetta er en ef þetta fer ekki að lagast þá stofna ég moggablogg eða eitthvað.
En núna er þessu skipt upp þannig að það sem kemur hérna beint að neðan var semsagt skrifað í gær og þar er útskýrt nánar hvaða rugl þetta er. Ég nenni samt ekki að setja inn myndirnar aftur þannig að þið verðið bara að ímynda ykkur geðveikt skemmtilegar og viðeigandi myndir með þessu 
Það er svosem ekkert að frétta... bara fótbolti í kvöld og þá er stefnan að drullast til að vinna loksins leik!!!________________________________________________________
Bloggið búið að vera með eitthvað vesen síðustu daga þannig að ég var með eina bloggfærslu tilbúna sem er búin að bíða síðan á laugardaginn. Reyndar ekki mikið búið að gerast síðan þá þannig að ég get kannski bara hent henni inn og sleppt því að blogga núna.
En já, afmælisveisla Guðrúnar búin og það er alveg óhætt að kalla þetta veislu. Geðveikt góðar veitingar, gott fólk og alveg glymrandi tónlist (ég sá um tónlistina að miklu leiti
).Hér fyrir neðan er bloggið sem ég var búinn að skrifa en tókst ekki að setja inná netið.
Ps. Er ótrúlega sáttur við litla frænda sem er ekki einu sinni orðinn mánaðar gamall en er strax farinn að kommenta á bloggið mitt... þú stendur þig vel frændi
_____________________________________________
Dagurinn byrjaði á því að ég skellti mér í skólann með verkefni sem ég gerði um nóttina. Hafði alveg nægan tíma til að vinna í verkefninu en þar sem ég misskildi smá þá hélt ég að ég mætti skila verkefninu viku seinna... en það reddaðist allavega.Svo skellti ég mér í ræktina og lét einkaþjálfarann pína mig áfram... sem var reyndar mjög gaman. Eftir ræktina var öll orka búin og ég ætlaði bara svona aðeins að leggja mig, úr varð að ég svaf í svona 2-3 tíma og slefaði fyrir allan peninginn.
Um kvöldið skellti ég mér svo á Austurindíafélagið þar sem Kvennóhópurinn var saman kominn. Þetta var ótrúlega þægilegt kvöld. Þetta var fyrsta skiptið sem ég borða þarna og maturinn var algjör snilld enda gáfu þér sér alveg góðar 50 mínútur til að elda þetta fyrir okkur
. Fólkið var risa hresst og mér heyrðist á fólki að það ætti að reyna að gera þetta að reglulegum atburði.
Mér fannst reyndar soldið fyndið að þegar ég mætti í veitingastaðinn sá ég Guðfinnu fyrrverandi rektor HR við stórt langborð og ætlaði að heilsa uppá hana og sá svo að það voru eiginlega allar á borðinu starfsmenn HR. Komst svo að því að Guðfinna var að halda uppá 50 ára afmælið sitt þannig að maður skellti sér til hennar og gaf henni eitt stykki afmæliskoss.
Við fórum svo af veitingastaðnum og þá tvístraðist hópurinn, hluti hópsins fór heim og aðrir (ætla að halda því fram að það hafi verið skemmtilega fólkið
fóru á Vegamót. Kvöldið endaði svo á því að hópurinn tvístraðist ennþá meira og ég og Helgi vorum einir eftir í bænum og skelltum okkur á tónleika á Nasa þar sem Jeff Who, Sprengjuhöllin og Motion Boys voru að spila.
Svo verður bara chill í allan dag þangað til ég fer í afmæli til Guðrúnar dansdrottningar 